Hello skvísí skvís.......hvað er nú að
frétta af ykkur?
Ég og Svenni fórum í útilegu á
Kirkjubæjarklaustur um verslunarmannahelgina ásamt Eika, Ásdísi og
fjölskyldu.....Emblu Sól og Benna litla krúttí bollu....algjörar
dúllur....Helena litla systir mín mætti líka á svæðið með Emblu
sína...
Embla og Benni eru á svipuðum aldri og á einmitt
þessum skemmtilega "Hæjjjj" aldri.....þannig að þau voru ansi góð
saman........Hæjjjjjj........stop í 2 sek........hæjjjjjj
aftur.......bros út að eyrum......hæjjjjjjjj....og svo framvegis.
Tók fullt af skemmtilegum myndum.....spurning um að skella þeim á
síðuna við tækifæri....kannski fá samþykki fyrst...Annars var þetta
ansi ljúf helgi......æðislegt að vera svona út í íslenskri náttúru
og anda að sér ekta íslensku sveitalofti......I just Love it....Við
fórum í sund á sunnudeginum.....og góðan bíltúr í stóra stóra fjöru
þarna langt langt í burtu.....man ekki alveg hvað hún heitir í
augnablikinu.....þar var alveg geðveikt......íslenskur sandur svo
langt sem augað eygði og sandhólar með stráum og allt.....síðan
sáum við sandkellingu í fjörunni sem einhverjir
ferðamenn höfðu verið að dunda sér að búa til þarna fyrr um
daginn. Hún var með svaka júllur og naflahring og allt......verð að
sýna ykkur myndina sem ég tók af henni.....Eika fannst hins vegar
júllurnar ekki vera alveg á réttum stað á konunni.....hún var með
brjóstinn alveg lant upp á háls....en Eiki eins og honum einum er
lagið setti brjóstin á réttan stað.....
allavega var
þetta var mjög skemmtileg ferð 
Um nóttina byrjaði fólk í næsta tjaldi við okkur
Svenna að tala þvílíkt mikið saman og ótrúlega hátt....voru á
þvílíku trúnó að þetta trúnó myndi slá öllum trúnómómentum sem ég
hef upplifað á æfinni....en þegar fólk er búið að drekka aðeins og
mikið eins og gengur og gerist þá fer fólk að tala hærra en það
þarf.....
En allavega við Svenni lágum þarna í kyrrðinni og
hlustuðum tilneydd nótabene....en svo þegar þau ætluðu bara alls
ekki að hætta þá ákvað Svenni að kalla "Getur maður kannski fengið
svefnfrið hérna".....ýkt pirr pirr....viti menn þau þögnuðu í
heilar 2 mín....ótrúlegt........En svo kom að því að þau kláruðu
trúnóinneignina og fóru að sofa.......
En viti menn þetta gat náttlega
ekki verið svo gott......nei Hemmi minn....haldidi að maðurinn hafi
ekki farið að hrjóta eins og hvalur......hefði allavega haldið að
þegar maður er í útilegu þá sé það hreinlega ekki hægt að liggja
andvaka af því að í næsta tjaldi er maður sem hrýtur.....allavega
hef aldrei heyrt neitt þessu líkt.....þetta var alveg
hillaríus.......þannig að ég náði að sofna svona 6.....náði fínum 1
og hálfum tíma áður en Embla krútt vaknaði og hefur náttlega aldrei
gist í tjaldi áður enda ekki nema 1 árs......Hún byrjaði kl. hálf 8
að segja .......vááááá........váááááá og Nenni
(Svenni) hæjjjjjjjj.....hæjjjjjj Nenni þannig að þetta var
meira en himneskt.....
Jæja nú er ég komin með krampa í
hendina.......verð að hætta þessu bulli.....En ég verð nú aðeins að
skamma ykkur svona í lokin.....Þið verðið nú að vera duglegri að
blogga stelpur mínar annars fer mín að hætta að nenna þessu
og hana nú 
Hvað finnst ykkur annars um þessa síðu?